Í máli og myndum . . .

Besta skúffukaka í heimi

Hér er uppskrift af bestu skúffuköku í heimi!

 Hún er eitt af leyndardómum minnar fyrrverandi tengdamóður og ég er ábyggilega búin að hringja svona 100 sinnum í hana til að fá uppskriftina......ég týni henni alltaf:/ en nú ætla ég að setja hana inn á síðuna mína og þá get ég sparað mér símtalið norður yfir heiðar:)

 2 bollar hveiti

1 1/3 Bolli sykur

 6 msk Kakó...svona alvöru Kötlu kakó

1 tsk Natron

1 tsk salt

2 egg

1/2 bolli lint smjörlíki

1 bolli súrmjólk

1 tsk vanilludropar

Gott er að blanda saman þurrefnum fyrst bæta svo við smjörlíki, eggjum, súrmjólk....og vanilludropunum síðast!! Ég tvöfalda hana alltaf og þá passar hún fínt í svona djúpa ofnskúffu, nema að ég tvöfalda ekki kakóið, það er nóg að gera svona 10 msk af því! Svo baka ég hana án blásturs í 20-25 mín við 180° gott að stings í hana til að tékka hvort hún sé bökuð!

Kremið er svona..... 500 gr flórsykur 200 gr brætt smjörlíki og 4 VEL FULLAR :) matskeiðar af kakó.

 Þessu er hrært saman og svo og svo er þetta þynnt út eftir smekk og þörfum með upp á helltu kaffi!

Njótið vel!

Flettingar í dag: 46
Gestir í dag: 13
Flettingar í gær: 70
Gestir í gær: 29
Samtals flettingar: 444361
Samtals gestir: 123893
Tölur uppfærðar: 20.5.2012 21:30:37

Um mig

Nafn:

Dekurbarnið ...

Afmælisdagur:

29 febrúar....

Staðsetning:

Reykjavík City...

Faðir:

Alexander...

Móðir:

Hrafnhildur...

Um:

Ég er ágæt ...

Uppáhalds manneskjur:

Baddi minn ...

Tenglar

eXTReMe Tracker